Legbólga
Höfundur: Helga Finnsdóttir • Sunnudagur, 29.sep, 2024 • Flokkur: AlmenntLegbólga er hættulegur sjúkdómur í tíkum og einnig læðum. Algengast er að tíkur veikist eftir 4 – 6 ára aldur og að fjórðungur þeirra fái legbólgu eftir 10 ára aldur.
Legbólga er hættulegur sjúkdómur í tíkum og einnig læðum. Algengast er að tíkur veikist eftir 4 – 6 ára aldur og að fjórðungur þeirra fái legbólgu eftir 10 ára aldur.
Vorið er skemmtilegur tími bæði fyrir hunda og hundeigendur sem hlakka til skemmtilegrar útiveru og hjóla- eða göngutúra, eftir langan vetur. Vorblómin gleðja augað, en ekki er allt sem sýnist, því mörg algengustu blómin í görðunum okkar eru eitruð og geta valdið óþægilegum, og jafnvel hættulegum, eitrunum nái hvolpur eða hundur að sleikja þau.
Áramótin nálgast og þá fer að bera á hávaða frá flugeldum. Þessi tímamót eru spennandi tími fyrir marga sprengju-glaða menn, en eru þó að sama skapi tími ótta og skelfingar fyrir mörg gæludýr. Hávaðinn og ljósglamparnir sem fylgja flugeldunum og skottertunum geta valdið þeim verulegri hræðslu og svo mikilli að jafnvel djörfustu veiðihundum […]
Á að klæða hunda í föt og getur það verið nauðsynlegt? Hvenær er of kalt fyrir lítinn hund að vera úti og er eitthvert viðmið sem hundeigendur geta stuðst við? Í meðfylgjandi grein má lesa hvað beri að varast þegar kalt er í veðri og skoða ,,kulda“töflu sem er gott að hafa til hliðsjónar miðað við veður.
Þrátt fyrir litla stofnstærð, og fullmikinn skyldleika, eru arfgengir og meðfæddir kvillar sem betur fer ekki margir í íslenzka fjárhundinum. Hér er getið helztu sjúkdóma sem hafa verið staðfestir í stofninum. Ekki mátti miklu muna að þessi þjóðargersemi okkar glataðist vegna andvaraleysi, en þakka má Íslandsvininum og áhugamanninum um íslenzka fjárhundinn, Mark Watson sem vakti athygli á þessari þjóðargersemi okkar að ekki fór illa.
Hundar verða kynþroska á aldrinum 8 – 10 mánaða og þá hefst framleiðsla karlhormóna sem stýra kynhvötinni, framleiðslu sáðfrumanna og kynbundnu atferli hundsins. Eigendur hunda spyrja oft um hvort eigi að gelda hundinn eða ekki og því miður eru svörin afar misvísandi. Lesið allt um geldingu eða ekki!
Undanfarnar vikur hefur hér á höfuðborgarsvæðinu borið nokkuð á einkennum í öndunarfærum hunda með þurrum hósta og nefrennsli og meira en eðlilegt kann að teljast. Sjúkdómurinn virðist bráðsmitandi, en sem betur fer hefur afar lítið borið á alvarlegum veikindum og flestir smitaðir hundar virðast ná sér fljótt og vel á einhverjum dögum.
eða smitandi barka- og berkjubólga (Infektiøs tracheobronchitis), er bráðsmitandi sjúkdómur sem nær yfir lungu og öndunarveg hunda og veldur misalvarlegum veikindum.
Hótelhósti brýst gjarnan út þar sem margir hundar eru samankomnir og eins og til dæmis á hundahótelum og af því dregur sjúkdómurinn nafn sitt, hundasýningum og námskeiðum.
Tíkur verða kynþroska á aldrinum 6 – 12 mánaða að meðaltali sem getur verið bæði einstaklings- og tegundabundið. Fyrstu einkenni kynþroskans er stækkun ytri kynfæra og blóðug útferð og þá er sagt að tíkin sé lóða.
Líkamstjáning hundsins er nokkuð flókin en skottið sem er áberandi líkamshluti hans sýnir hugarástand hans, rétt eins og andlitið sýnir svipbrigði okkar.